| Dynamics-NAV |
Snerta býr yfir mikilli sérþekkingu um Navision kerfið enda hefur það þjónustað mörg stórfyrirtæki á borð við Símann, Opin Kerfi, Tekk Company, Stórkaup, Ingvar Helgason og Bílanaust í Navision málum, svo fátt eitt sé nefnt. Notendur Snerta / Navision tengingarinnar eru fjölmargir. Enda hefur reynst mönnum vel og hagkvæmt að nyta utanáliggjandi kassakerfi ofan á Navision. Til eru nokkrar útfærslur á tengingunni milli Navision og Snerta kassakerfisins. Útfærslurnar fara eftir stærð Navision kerfisins og uppbyggingu verslana. 1. Sú einfaldasta - Skráarflutningur. Notandi navision kerfisins sendir textaskrá með viðskiptamönnum, birgðum og strikamerkjum út á kassakerfið eftir þörfum. Í lok dags myndar kassakerfið svo uppgjörsskrá sem bókari getur svo lesið inn og bókað. Hér getum við bæði lesið inn í sölunótur og myndað reikning pr. færslu í kassakerfinu (mikið færslumagn) eða lesið inn í færslubækur (minna færslumagn). 2. Skilvirkari - Skráarflutningur. Þegar viðskiptamaður eða vara er breytt þá myndast breytingaskrá fyrir kassakerfið sjálfvirkt. Uppgjör er eins og aðferð #1. 3. Beintenging við Navision - ef búið er að fjárfesta í SQL kerfi eða ODBC leyfi þá getur kassakerfið sótt gögn svo til beint. Uppgjör eru eins og aðferð #1. Meðal notenda Navision / Touch-store tengingarinnar eru Tekk-Company, GK Reykjavík, Marimekko, Hole in One svo fátt eitt sé nefnt, en notendum fjölgar stöðugt. Snerta er söluaðili á Navision hugbúnaðinum og getur aðstoðað viðskiptavini við val á réttu kerfi með tengingu við Touch-store kassakerfið. |
| Gámaþjónustan setur upp afgreiðslukerfi á sorpmóttökustöðum fyrirtækisins. Gámaþjónustan er öflugt fyrirtæki á sínu sviði og annast sorpmóttöku víðsvegar á landinu. |
| Nánar... |