| Um okkur |
|
Árið 1997 hófu tveir nýútskrifaðir kerfisfræðingar þróun á kassakerfinu Touch-Store, en kerfið var upphaflega skrifað fyrir Sævar Karl í Bankastræti. Segja má að samvinna kerfisfræðinganna hafi byrjað sem fámennur saumaklúbbur. Árið 1999 voru notendur Touch-Store orðnir þrír og því var ákveðið að stofna einkahlutafélag utan um hugbúnaðinn og til varð Snerta ehf. Árið 2001 var mikill uppgangstími og við bættist einn tölvunarfræðingur og tekið var upp samstarf við söluaðila í Danmörku. Samstarfsaðilinn í DK var svo kominn með reglulegar sölur í DK uppúr árinu 2002. Nú starfa fjórir við sölu og þjónustu í DK og eru notendur Touch-Store komnir yfir 250. Á síðustu árum hefur notendum fjölgað hratt og árið 2006 var ákveðið að stofna Snerta Ísland ehf. til þess að sinna þjónustu við notendur hérlendis. Notendur á Íslandi eru yfir 350 og eru því samtals yfir 600 notendur á Norðurlöndunum. Nú í ár, 2007, á 10. afmælisári Touch-Store kassakerfisins var ákveðið að tími væri kominn til að fjárfesta í skrifstofuhúsnæði. Áveðið var að staðsetja það í Vogunum og hvetjum við viðskiptavini að kíkja í heimsókn til okkar í nýja húsnæðið. Einnig hefur Snerta ehf stofnað dótturfélagið Snerta UK LTD í Bretlandi í samstarfi við þarlenda aðila til að markaðssetja og þjónusta Touch-store kassakerfið og xMerge hugbúnaðin. Í dag starfa 3 hjá Snerta ehf við þróun kerfisins og þjónustu við endursöluaðila, 3 starfa hjá Snerta Ísland ehf við sölu og þjónustu við notendur og 2 starfa hjá Snerta UK LTD við sölu og þjónustu að lokum starfa 4 við sölu og þjónustu á afgreiðslukerfinu í Danmörku. Snerta Sími 511 2500 - Fax 511 2501 |
| Pizzeria Rizzo hafa valið Touch-store kassakerfið sem afgreiðslukerfi á öllum veitingastöðum. |
| Nánar... |