| Þjónusta |
|
Snerta býður upp á þjónustu við kassakerfið Touch-store svo og fjöldasendingarkerfinu xMerge. Öll þjónusta er í höndum Snerta Ísland ehf en það fyrirtæki stafrækir öflugt þjónustuborð. Við bjóðum upp á mismunandi þjónustustig sem þó öll byrja á símtali í 511 2500. Skiptiborðið er opið virka daga milli 9 og 17. Utan opnunartíma má velja að fá samband við bakvakt Snerta en þá flyst símtalið í starfsmann sem er á bakvakt. Ef þjónustuaðili getur ekki leyst úr vandamálinu í síma getum við boðið viðskiptavinum upp á fjartengingu, en Snerta hefur komið upp öflugum fjartengihugbúnaði þar sem viðskiptavinur fer inn á heimasíðu Snerta og velur fjarþjónustu en þá tengist þjónustuaðili inná tölvukerfi notanda. Að þjónustu loknu slitnar sambandið. Einnig getur þjónustuaðili einnig mætt á staðinn og sinnt allri þjónustu á staðnum þetta getur reynst nauðsynlegt ef um alvarlega bilun er að ræða ss. vélbúnaðarbilun eða bilun í netsambandi. Að lokum bjóðum við einnig uppá samtengt þjónustuborð en þá er aðgangur að kerfum viðskiptavinar allan sólarhrings, þessi leið er afar hentug ef viðskiptavinur vill fela Snerta stærri hluta af rekstri tölvukerfis en þá önnumst við allt eftirlit með öryggisafritunartöku ofl. Snerta hefur áralangra reynslu af fjarþjónustu við notendur bæði nær og fjær þar sem fjöldi viðskiptavina eru erlendis. Fjarþjónusta hefur reynst afar hagkvæm þjónustuleið fyrir alla aðila. |
| Gámaþjónustan setur upp afgreiðslukerfi á sorpmóttökustöðum fyrirtækisins. Gámaþjónustan er öflugt fyrirtæki á sínu sviði og annast sorpmóttöku víðsvegar á landinu. |
| Nánar... |