|
F-PROT Antivirus fyrir Windows (Lykla-Pétur) er eitt fremsta veiruvarnaforritið á markaðnum í dag. Það byggir á margra ára rannsóknar- og þróunarvinnu af mörgum helstu veiruvarnasérfræðingum heims.
Kostir F-PROT Antivirus:
Létt og meðfærilegt Auðvelt í notkun Einfalt í uppsetningu Er á íslensku Má setja á allar tölvur heimilisins Öll þjónusta við viðskiptavini fer fram á íslensku, bæði í gegnum tölvupóst og síma. Uppfærslur fylgja í ár, bæði á veirugagnaskrám og á forritinu sjálfu. F-PROT Antivirus notar minna vinnsluminni en flestar veiruvarnir og hægir sem minnst á almennri vinnslu.
F-PROT Antivirus- Býður upp á:
- Sjálfvirka skanna sem fylgjast með öllum skrám þegar skrár eru opnaðar, vistaðar eða afritaðar.
- Sjálfvirka skráarkerfisvörn sem býður upp á alsjálfvirka vörn fyrir allar skrár á tölvunni.
- Sjálfvirka hreinsun veira, orma og Trójuhesta án þess að skemma lögleg gögn.
- Háþróðaða reglusafnaleit sem verndar tölvuna gegn nýjum og jafnvel óþekktum veirum.
- Alsjálfvirkar uppfærslur á veirugagnaskrám og á forritinu sjálfu.
- Vafrara- og tölvupóstvörn sem býður upp á sjálfvirka rauntíma vörn fyrir allar skrár sem sem tölvan sækir inn á skráarkerfi tölvunnar.
- Vörn gegn hættulegum ActiveX skrám.
- Sóttkví til að eingangra smitaðar og grunsamlegar skrár.
- Háþróaðan skipanalínuskanni fyrir þá lengra komnu.
- Ítarlega upplýsingaskráning í kerfisgögn og leitarskýrslur.
- Útilokanir á skrám, möppum eða skáargerðum fyrir sjálfvirka og handvirka skönnun.
Snerta mælir með uppsetningu vírusvarna til að tryggja rekstraröryggi. Hægt er að kaupa F-PROT frá Friðriki skúlasyni hjá okkur.
|